Saving Landsvirkjun ASS

Að sjá lítin hóp af sóðalegum apaköttum sem líta út fyrir að vera uppdópaðir í húsi Landsvirkjunar beyta fyrir sig umhverfisverndarsjónarmiðuð sér til eigin framdráttar og til að fullnægja athyglissýki er einungis vatn á myllu virkjunarsinna og þeirra sem standa í hernaðanum gegn landinu. http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397998/5

Fjöldi magnaðs fólks hefur beytt sér fyrir og verið málsvari hálendinsins og þeirra svæða sem hafa verið eða eru í hættu á að vera eyðilögð eins og td Andri Snær og Ómar Ragnarsson. Þeir hafa vakið athygli og fylgt á bak við sig tug þúsunda sem ofbýður hernaðurinn gegn landinu. Þessi SI lýður gæti ekki fengið soltin hund til að fylgja sér þó þau myndu hengja kótilettur á trýnið á sér.

Saving Landsvirkjun Ass (væri réttnefni á þessum samtökum) hefur aftur á móti hefur einungis rifið niður og skemmt fyrir þessari baráttu og fengið fjölmarga á móti málefninu.

Þess vegna þegar maður heyrir orðið “atvinnumótmælendur” hlýtur maður að spyrja sig hver ætti svosem að borga? Hver græðir mest mest á þessum ömurlega skríl sem kallar sig “saving iceland” (ALGJÖRT rangnefni)? Jú það er Landsvirkjun, virkjunarsinnar og erlendir auðhringar til að mynda Alcoa.
En hvað ætli SI sé ekki sama? Þau sá sjálfa sig ,eins og dansandi veruleikafirtir dóphausar, í sjónvarpinu og það er það eina sem skiptir þau máli. Íslensk náttúra heldur áfram að tapa.


mbl.is Mótmælaaðgerðum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband